Af hverju sniglapóstur?
Hver man ekki eftir því að fyllast eftirvæntingu við að fá bréf stíluð á sig í gegnum póstlúguna, en nú eru einu bréfin sem læðast inn annaðhvort ruslpóstur eða ógreiddir reikningar.
Sniglapóstur er gerður til að lífga upp á hversdagsleikann og draga okkur úr litskrúðugum símanum yfir í okkar raunverulega umhverfi. Hví ættum við ekki svo að lita það líka með list og ljóðum.
Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri og rými til að dúlla mér í ljóðum og myndskreytingum. Í þessari póstáskrift svokallaðri sendi ég frá mér allskonar í hverjum mánuði; kjarninn verður þó alltaf ljóð og myndskreyting, en hver veit hvað meira mun leynast inn á milli.
— Iða Ósk

Um Iðu Ósk
Iða Ósk Gunnarsdóttir er leikkona og leikstjóri og höfundur ljóðabókarinnar Kerti og spil. Hún skrifar, myndskreytir og póstleggur hvert bréf Sniglapósts sjálf.
