Algengar spurningar
Hvernig virkar Sniglapóstur?
Sniglapóstur er ljóðaáskrift í pósti. Í hverjum mánuði sendi ég þér frímerkt bréf í umslagi, beint inn um lúguna. Kjarninn er alltaf ljóð og myndskreyting eftir mig, en hver veit hvað fleira leynist inn á milli.
Hvenær kemur fyrsta bréfið?
Fyrsta bréfið fer í póst um næstu mánaðarmót eftir að þú skráir þig, og svo kemur nýtt bréf í hverjum mánuði á meðan áskriftin er virk.
Hvað kostar áskriftin og sendir þú til útlanda?
Innanlands kostar Sniglapóstur 990 kr. á mánuði eða 10.500 kr. á ári, og sendingarkostnaður er innifalinn. Já, ég sendi líka til útlanda: innan Evrópu kostar áskriftin 1.100 kr. á mánuði eða 11.660 kr. á ári, og utan Evrópu 1.350 kr. á mánuði eða 14.350 kr. á ári. Þú velur leiðina í greiðsluforminu.
Hvernig virkar gjafaáskrift?
Þú greiðir einu sinni fyrir 3, 6 eða 12 mánuði (3.990 kr., 6.950 kr. eða 12.500 kr.) og bréfin berast mánaðarlega beint til þess sem fær gjöfina. Í greiðsluforminu seturðu inn þínar upplýsingar og velur svo að senda á annað heimilisfang, þar sem þú skráir nafn og heimilisfang þess sem fær gjöfina. Gjafir má senda hvert sem er í heiminum: þú velur eitt sendingarsvæði (Ísland, innan Evrópu eða utan Evrópu) í greiðsluforminu. Innan Evrópu kostar gjöfin 4.400, 7.700 eða 14.300 kr. og utan Evrópu 5.400, 9.450 eða 17.550 kr. (3, 6 eða 12 mánuðir).
Endurnýjast gjafaáskriftin?
Nei. Gjafaáskrift er greidd einu sinni og endurnýjast ekki sjálfkrafa, svo ekkert er innheimt eftir að gjafatímabilinu lýkur. Ef viðtakandinn vill halda áfram að fá bréf getur hann skráð sig í áskrift hér á síðunni.
Get ég gefið Sniglapóst í jólagjöf?
Svo sannarlega! Áður en þú greiðir geturðu skrifað Til, Frá og kveðju á gjafabréf sem viðtakandinn fær sent til að setja undir tréð. Reitirnir eru valfrjálsir og þú mátt alveg sleppa þeim. Fyrir jólin: pantaðu í síðasta lagi 15. desember til að fá gjafabréfið sent í pósti, eða í síðasta lagi 23. desember til að fá það sem PDF í tölvupósti.
Hvernig greiði ég?
Þú greiðir með greiðslukorti hér á síðunni, á öruggu greiðsluformi frá Áskeli með greiðslumiðlun Teya. Staðfesting á kaupunum kemur í tölvupósti frá Áskeli.
Hvernig segi ég upp áskriftinni?
Þú getur sagt upp hvenær sem er með því að senda mér tölvupóst á idagunnars@gmail.com. Uppsögnin tekur gildi í lok tímabilsins sem er í gangi og eftir það er ekkert innheimt, en þú færð þau bréf sem tilheyra því tímabili. Nánar í skilmálunum.
Önnur spurning? idagunnars@gmail.com
