Sniglapóstur
Ljóð í pósti, einu sinni í mánuði

Ljóð inn um lúguna í hverjum mánuði

Manstu eftirvæntinguna þegar bréf stílað á þig datt inn um lúguna? Sniglapóstur er frímerkt bréf með ljóði og myndskreytingu eftir Iðu Ósk, sent til þín í hverjum mánuði.

990 kr. á mánuði · sending innifalin · uppsögn hvenær sem er

Gult umslag frá Sniglapósti með frímerki og handmáluðu bréfi með gulri stjörnu

Heyrist: bank! bank!
Hringt: ding! ding!
Um lúgu læðist bréf

Jólagjöf sem kemur í hverjum mánuðiPantaðu fyrir 15. des. til að fá gjafabréfið í pósti.

Skoða gjafir
Svona virkar það

Frá skrifborðinu inn um lúguna þína

  1. Þú skráir þig

    Mánaðarlega eða árlega, innanlands eða til útlanda. Greitt á öruggu formi frá Áskeli.

  2. Ég skrifa og teikna

    Í hverjum mánuði er ljóð og myndskreyting kjarninn í bréfinu, og stundum leynist eitthvað fleira inn á milli.

  3. Bréfið berst

    Frímerkt og póstlagt. Fyrsta bréfið fer um næstu mánaðarmót. Uppsögn hvenær sem er.

Myndskreytt ljóð eftir Iðu Ósk: handskrifaðar línur á milli málaðra stjarna
Ljóð og mynd: Iða Ósk
Úr bréfunum

Smá forsmekkur

Heyrist: bank! bank!

Hringt: ding! ding!

Um lúgu læðist bréf

— Iða

JólinGjöf

Jólagjöf sem kemur í hverjum mánuðiGjöf sem kemur í hverjum mánuði

Greidd einu sinni, í 3, 6 eða 12 mánuði, frá 3.990 kr. Með gjafabréfi til að setja undir tréð.

Tvö gul umslög frá Sniglapósti, annað lokað með frímerki og hitt opið með handmáluðu bréfi
Hver skrifar bréfin?

Hæ, ég heiti Iða Ósk

Fyrir mér er ekkert skemmtilegra en að fá tækifæri og rými til að dúlla mér í ljóðum og myndskreytingum. Í hverjum mánuði sendi ég frá mér allskonar; kjarninn verður þó alltaf ljóð og myndskreyting, en hver veit hvað meira mun leynast inn á milli.

Iða Ósk við skrifborðið með gul umslög, frímerki og pappírsstjörnur

Gott að vita

Hvernig virkar Sniglapóstur?

Sniglapóstur er ljóðaáskrift í pósti. Í hverjum mánuði sendi ég þér frímerkt bréf í umslagi, beint inn um lúguna. Kjarninn er alltaf ljóð og myndskreyting eftir mig, en hver veit hvað fleira leynist inn á milli.

Hvenær kemur fyrsta bréfið?

Fyrsta bréfið fer í póst um næstu mánaðarmót eftir að þú skráir þig, og svo kemur nýtt bréf í hverjum mánuði á meðan áskriftin er virk.

Hvað kostar áskriftin og sendir þú til útlanda?

Innanlands kostar Sniglapóstur 990 kr. á mánuði eða 10.500 kr. á ári, og sendingarkostnaður er innifalinn. Já, ég sendi líka til útlanda: innan Evrópu kostar áskriftin 1.100 kr. á mánuði eða 11.660 kr. á ári, og utan Evrópu 1.350 kr. á mánuði eða 14.350 kr. á ári. Þú velur leiðina í greiðsluforminu.

Allar spurningar og svör →

Langar þig í hægan póst?

Næsta bréf fer í póst um næstu mánaðarmót.