draft: true er tekið út.Jólagjöf sem kemur í hverjum mánuði
Flestar jólagjafir eru opnaðar á aðfangadagskvöld og svo er það búið. Gjafaáskrift að Sniglapósti virkar öðruvísi: hún heldur áfram að berast, mánuð eftir mánuð, löngu eftir að jólapappírinn er farinn í endurvinnsluna.
Svona virkar gjafaáskrift
- Þú velur hversu lengi gjöfin á að gilda: 3, 6 eða 12 mánuði.
- Þú greiðir einu sinni. Gjafaáskrift endurnýjast ekki sjálfkrafa og ekkert meira er innheimt eftir að gjafatímabilinu lýkur.
- Í greiðsluforminu setur þú inn þínar upplýsingar og velur að senda á annað heimilisfang, þar sem þú skráir nafn og heimilisfang þess sem fær gjöfina.
- Bréfin berast svo mánaðarlega beint inn um lúguna hjá viðtakandanum.
Gjafabréf til að setja undir tréð
Áður en þú greiðir geturðu skrifað Til, Frá og stutta kveðju á gjafabréf sem viðtakandinn fær til að setja undir tréð. Reitirnir eru valfrjálsir, svo þú mátt alveg sleppa þeim.
Fyrir jólin: pantaðu í síðasta lagi 15. desember til að fá gjafabréfið sent í pósti, eða í síðasta lagi 23. desember til að fá það sem PDF í tölvupósti.
Hvað kostar gjöfin?
Sendingarkostnaður er innifalinn í öllum verðum.
- Innanlands: 3.990 kr. (3 mánuðir), 6.950 kr. (6 mánuðir) eða 12.500 kr. (12 mánuðir)
- Innan Evrópu: 4.400 kr., 7.700 kr. eða 14.300 kr.
- Utan Evrópu: 5.400 kr., 9.450 kr. eða 17.550 kr.
Gjafir má senda hvert sem er í heiminum. Þú velur eitt sendingarsvæði í greiðsluforminu.
Fyrir hvern?
Gjöfin hentar til dæmis þeim sem eiga allt, þeim sem búa langt í burtu og þú vilt minna á þig, ömmum og öfum sem kunna að meta bréf, og öllum sem hafa gaman af ljóðum og myndlist.
